10.01.21

Gullinbrú - mönnunarlíkan fyrir stjórnendur

Gullinbrú heitir mönnunarlíkan sem búið hefur verið til vegna betri vinnutíma í vaktavinnu 

Markmið með Gullinbrú er að:

  • Hjálpa stjórnanda að hafa yfirsýn yfir raunverulega þörf á stöðugildum.
  • Hjálpa stjórnanda að hafa yfirsýn yfir starfsmannahópinn.
  • Stjórnandi sjái á mælaborði hversu mörg stöðugildi hann hefur mannað upp í svokallað mönnunargat og hvað upp á vantar.
  • Starfsfólk sé upplýst á innleiðingartíma um áhrif mönnunargats og hvetji til aukins starfshlutfalls sé þörf á því.
  • Hjálpa þeim sem hafa yfirsýn yfir margar deildir/skipulagseiningar í samtali við hvern og einn stjórnanda og mögulega við innleiðingarhóp og/eða verkefnastjórn/stýrihóp. 

Nýjastu útgáfu á Gullinbrú má nálgast undir verkfæri stjórnanda. 

Hlekkur á kennslu á líkanið skref fyrir skref má finna í myndbandi undir fræðsluefni.

Upptaka af fræðslu á námskeiði má finna í myndbandi undir fræðsluefni. 

Gullinbrú - mönnunarlíkan fyrir stjórnendur - mynd
Fara í áskrift