17.01.21

Námskeið fyrir stjórnendur - Kostnaðarmatslíkan

Kostnaðarmatslíkan er viðbót við mönnunarlíkanið Gullinbrú sem búið hefur verið til og á að auðvelda stjórnendum við innleiðingu á betri vinnutíma í vaktavinnu.

Markmið með kostnaðarmatslíkaninu er að sýna áhrif forsendna mönnunar eftir umbótasamtal og betri vinnutíma á launakostnað.

Gullinbrú í heild sinni verður nýtt til að meta hvort mönnunarforsendur teljist standast á vinnustað vegna kerfisbreytingarinnar sem tekur gildi þann 1. maí næstkomandi.

Fjármálastjórum er bent sérstaklega á að koma á námskeið á kostnaðarmatslíkanið. Þeir sem ekki hafa sótt námskeið á mönnunarlíkan þurfa að kynna sér Gullinbrú vel áður en námskeið á kostnaðarmatslíkanið er sótt. Allar nánari upplýsingar um Gullinbrú er að finna hér.

 

Námskeiðið er ein klukkustund að lengd og fer fram á teams.

Skráning námskeiða fer fram á vef Starfsmenntar

Tímasetningar námskeiða eru eftirfarandi:

    20. jan kl. 11.15

    21. jan kl. 11

    21. jan kl. 15

    22. jan kl. 13

    25. jan kl. 11

    25. jan kl. 13

    26. jan kl. 11

  - mynd
Fara í áskrift