08.04.21
Eyðublað vegna tilkynninga um kerfisfrávik í Vinnustund
Búið hefur verið til eyðublað sem notendum Vinnustundar er bent á að nota til að tilkynna kerfisfrávik.
Kerfisfrávikum er safnað saman af Sunnan10 ehf. og komið til Vinnustundarhóps Advania.
Til áréttingar eru haldnir daglegir stöðufundir vegna breytinga á Vinnustund og eru upplýsingar settar inn á vef Fjársýslunnar (FJS) sem fréttir. Finna má allar fréttirnar á forsíðu vefsins.
Ef ábendingar eða fyrirspurnir vegna vaktakerfa/viðverukerfa snerta annað en villumeldingar/frávik í kerfum er bent á netföng fyrir hvern launagreiðanda:
1. Ríki – Fjársýslan [email protected]
2. Reykjavíkurborg - [email protected]
3. Sveitarfélög
- Viðkomandi sveitarfélag
- Samband íslenskra sveitarfélaga – [email protected]
4. Samtök fyrirtækja í velferðarþjónustu
- Viðkomandi stofnun/vinnustaður/heimili