14.04.21

Námskeið fyrir launafulltrúa

Opnað hefur verið fyrir skráningu á námskeið fyrir launafulltrúa hjá ríki, Reykjavíkurborg, sveitarfélögum og Samtökum fyrirtækja í velferðarþjónustu. 

Skráningar á námskeiðin fara fram á vef Starfsmenntar. 

Markmið námskeiðs

Markmið námskeiðsins er að launafulltrúar þekki lykilatriði launavinnslu og nýrra launamyndunarþátta tengt betri vinnutíma í vaktavinnu. 

Efni námskeiðs

Á námskeiðinu verður meðal annars farið yfir;

  • Nýtt launamyndunarkerfi betri vinnutíma í vaktavinnu.
  • Áhrif einstakra breyta á launamyndun.
  • Skilgreiningar á vaktavinnumanni. 
  • Orlof vaktavinnumanna.
  • Forgangsröðun hagsmuna og jafnræði í starfsmannahópi.
  • Hvíldartímalöggjöf.

Kennt verður í gegnum TEAMS forritið. 

Launafulltrúar sem starfa með vaktavinnufólk hjá opinberum launagreiðendum eru sérstaklega hvattir til að mæta á námskeið.

 

Námskeið fyrir launafulltrúa - mynd
Fara í áskrift