05.05.21
Allir hvattir til að svara viðhorfskönnun um vaktavinnu
Um þessar mundir er verið að gera mestu breytingar á fyrirkomulagi vinnutíma opinberra starfsmanna í áratugi undir yfirskriftinni „Betri vinnutími“.
Samtök launfólks og opinberir launagreiðendur hafa tekið höndum saman um að mæla viðhorf til og árangur verkefnisins.
Skoðun starfsfólks á þessum breytingum skipta miklu máli fyrir þróun og áframhald verkefnisins „Betri vinnutími“.