Vaktavinna
Vaktahvati
Vaktahvati er nýjung og greiðist sem hlutfall mánaðarlauna vegna fjölbreytileika og fjölda vakta á launatímabili samkvæmt skiplögðum vöktum innan vinnutímaskyldu.
Til að starfsfólk fái vaktahvata þarf að uppfylla eftirfarandi skilyrði:
- Lágmarksfjöldi vinnuskyldustunda á hverju launatímabili utan dagvinnumarka (á 33,33%, 55%, 65% og 75% álagi) þurfa að vera að lágmarki 42 vinnuskyldustundir.
- Vaktir eru flokkaðar í fjórar tegundir; dagvaktir, kvöldvaktir (33,33% álag), næturvaktir á virkum dögum (65% álag) og helgarvaktir (55% og 75% álag). Uppfylla þarf a.m.k. tvær tegundir vakta.
- Lágmarksfjöldi vinnuskyldustunda í hverri tegund vakta skal vera að lágmarki 15 vinnuskyldustundir.
- Starfsmaður þarf að mæta a.m.k. 14 sinnum eða oftar til starfa.
Á síðunni Spurt og svarað eru ýmsar spurningar um vaktahvata.