11.02.21

Kynntu þér jöfnun vinnuskila fyrir vaktavinnufólk

Við gildistöku betri vinnutíma í vaktavinnu, frá 1. maí 2021, mun verða breyting á helgidagafríi en í stað þess verður tekið upp nýtt fyrirkomulag sem heitir jöfnun vinnuskila.

Hvað fellst í breytingunni?

Breytingin felur í sér að árleg vinnuskylda vaktavinnufólks sem vinnur á reglubundnum vöktum verður að jafnaði sú sama og hjá dagvinnufólki. Vinnuskylda vaktavinnufólks lækkar því um 7,2 vinnuskyldustundir miðað við fullt starf vegna hvers sérstaks frídags og stórhátíðardags, skv. gr. 2.1.4.2, sem falla á mánudag til föstudags að undanskildum aðfangadegi og gamlársdegi sem skal vera 3,6 klukkustundir fyrir hvorn dag miðað við fullt starf.

Hvert er markmið breytinganna?

Markmið með jöfnun vinnuskila er að gera starfsfólki í vaktavinnu kleift að taka út frí jafnóðum, líkt og dagvinnufólk, vegna styttri vinnuskila þegar rauðir dagar falla á virkan dag. Meginmarkmið kerfisbreytinganna er að stuðla að betri heilsu, auknu öryggi starfsfólks og auknu jafnvægi vinnu og einkalífs. Með breytingunni er þannig komið til móts við vaktavinnufólk og tryggt að þau fái frí strax og þau hafa unnið á rauðum degi. Með þeim hætti má fyrirbyggja uppsafnaða þreytu enda nær starfsfólk hvíld og endurheimt með reglubundnum hætti.

 Kynntu þér vel leiðbeiningar um jöfnun vinnuskila sem finna má hér. 

  - mynd
Fara í áskrift