01.09.21
Umbótavegferð og eftirfylgni betri vinnutíma í vaktavinnu
Kerfisbreytingin sem felst í innleiðingu betri vinnutíma í vaktavinnu er í senn tímamótabreyting og eitt stærsta breytingarverkefni sem launafólk og launagreiðendur hafa sameinast um að fara í til margra ára. Breytingarnar eru einnig mestu vinnutímabreytingar í a.m.k. 50 ár hér á landi.
Í ljósi þessara miklu breytinga má búast við því að enn séu einhverjir hnökrar í vinnufyrirkomulagi á hverjum vinnustað sem þarf að breyta í takt við forsendur og leiðarljós verkefnissins.
Til upprifjunar eru hér leiðarljós og forsendur verkefnisins.
Leiðarljósin eru öryggi, heilsa og jafnvægi vinnu og einkalífs.
Forsendur breytinganna eru:
- Umbætur og umbótasamtal
- Kostnaður vegna yfirvinnu lækki og mönnunargati verði mætt á dagvinnutíma
- Starfsfólk í hlutastarfi á rétt á að auka við starfshlutfall sitt sem nemur styttingu vinnuvikunnar
Áskoranir
Verkefnastjórn hefur borið kennsl á nokkrar áskoranir sem einkenna marga vinnustaði. Vinnustaðir eru beðnir um að horfa til eftirfarandi þátta og bregðast við ef þörf er á:
- Hvetja þarf til aukins starfshlutfalls þar sem enn eru hlutastörf og mönnunargat til staðar.
- Enn er verið að ráð í störf og þjálfa nýtt starfsfólk þar sem stórir hópar starfsfólks voru í fullu starfi fyrir breytingarnar.
- Mikilvægt er að horfa á jafnræði í starfsmannahópi á hverju launatímabili til að koma í veg fyrir stórar sveiflur á launum milli mánaða.
- Horfa þarf til samsetningu vakta í takt við markmið verkefnisins og virða meginreglur hvíldartímalöggjafar við skipulag vakta.
- Horfa þarf til nokkurra mánaða áður en laun hópa eru metin m.t.t. lækkunar. Bent er á gátlista sem þarf að yfirfara.
Eftirfylgni
Matshópur hefur það hlutverk að fylgja eftir lykilmælikvörðum sem liggja til grundavallar kerfisbreytingunum sem felast í betri vinnutíma. Matshópurinn er hópur sérfræðinga frá launagreiðendum og launafólki. Allir launagreiðendur og vinnustaðir hafa skuldbundið sig til að skila mánaðarlegum lykilmælikvörðum. Þessa dagana er vinna þeirra í fullum gangi. Frekari upplýsingar vegna þessa má finna hér.